Sjóklæðagerðin hf., sem framleiðir og selur fatnað undir merkjum 66°Norður, tapaði 509 milljónum króna á síðasta ári, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.
Rekstrartekjur samstæðunnar jukust lítillega á milli ára og námu 6.593 milljónum króna í fyrra. Rekstrarkostnaður var 5.873 milljónir króna.
EBITDA nam 558 milljónum króna samanborið við 698 milljónir króna árið 2023.
Eignir félagsins voru bókfærðar á tæplega 7,5 milljarða króna í árslok 2024. Eigið fé félagsins nam 1.478 milljónum króna.
„Árið 2024 var ár umbreytinga hjá 66°Norður, þrátt fyrir hægari vöxt eru tekjur ársins í takt við árið 2023 en á því ári var 18% tekjuaukning,“ segir Helgi Rúnar Óskarsson, eigandi og forstjóri Sjóklæðagerðarinnar hf.
Félagið opnaði nýja verslun á Kastrup-flugvelli sumarið 2024 og rekur nú tvær verslanir í Kaupmannahöfn og eina í London. Tekjur félagsins í Danmörku jukust um 17% milli ára en félagið opnaði þar nýja verslun á Kastrup flugvelli, stofnaði skrifstofu í Kaupmannahöfn og réði framkvæmdastjóra fyrir starfsemina.
Þá voru einnig gerðar umfangsmiklar endurbætur á verslun félagsins í Leifsstöð en félagið endurnýjaði leigusamning við Isavia til næstu ára.
Draga úr sókn á Bandaríkjamarkaði
Helgi Rúnar segir að miklar launahækkanir, háir vextir og verðbólga hafi haft áhrif á reksturinn. 66°Norður hafi þó haldið tekjum stöðugum og aukið söluna á lykilmarkaðssvæðum, þar á meðal í vefverslun og verslunum í Kaupmannahöfn og London.
„Við drógum úr sókn á Bandaríkjamarkaði og munum ígrunda vel þróunina hjá okkur á þeim markaði.“
Á síðasta ári hafi félagið nýtt tímann til að endurskipuleggja starfsemina og voru birgðir lækkaðar markvert um 760 milljónir króna.
„Við héldum áfram að fjárfesta í hönnun, sjálfbærni og innviðum, þar á meðal í endurbyggingu á Leifsstöð sem kallaði á hálfs árs lokun á verslunni. Við byggjum ávallt á íslenskum grunni en leggjum aukna áherslu á alþjóðlegan vöxt.
Við erum á langtímavegferð að byggja upp og styrkja vörumerkið 66°Norður á Íslandi og erlendis. Þegar á móti blæs er ekkert eins mikilvægt eins og missa ekki sjónar á þeim kjarnagildum sem félagið stendur fyrir undanfarin 99 ár sem eru gæði, sjálfbærni, falleg og tímalaus hönnun.“
Nýsköpun og samstarfsverkefni árið 2024
Meðal samstarfsverkefna 66°Norður við fjölbreytta aðila innan tísku-, lista- og útivistarheimsins á síðasta ári eru:
- Fyrirtækið kynnti The Traveller Collection, vörulínu sem sækir innblástur í ferðalag kríunnar og er hönnuð fyrir nútímaferðalanga. Línan var þróuð í samstarfi við Kei Toyoshima, fatahönnuð hjá Louis Vuitton.
- Í samstarfi við Reykjavík Roses var framleidd ný fatalína sem seldist upp á örfáum dögum.
- Ný vörulína hönnuð í samstarfi við Charlie Constantinou, einn framsæknasta hönnuð Breta í dag, var kynnt í fyrra haust. Vörulínan var að stórum hluta unnin úr afgangsefnum úr verksmiðjum fyrirtækisins.
- Sem hluti af sjálfbærnisviðleitni fyrirtækisins kom vinsælasti skeljajakki fyrirtækisins, Snæfell, út í nýrri útgáfu með meiri vatnsheldni og betri öndun. Jakkinn er úr nýju efni sem er byggt á plöntum og án PFAS-efna.
- Á HönnunarMars sýndi listakonan Ýrúrarí hvernig ósöluhæfar peysur fengu nýtt líf með bótum úr efnisleifum – verkefni sem undirstrikar hringrásarhugsun og sjálfbærni.
- Fyrirtækið tók þátt í Lífskraftsdeginum í samstarfi við Lífskraft, Krabbameinsfélagið og Hafnarfjarðarbæ. Markmiðið var að vekja athygli á mikilvægi útivistar og sjálfseflingar í endurhæfingu krabbameinssjúklinga.