Sjóvá tapaði 540 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 421 milljón króna á sama tímabili í fyrra.
Forstjóri Sjóvá, Hermann Björnsson, segir í afkomutilkynningu félagsins að afkoman á fyrsta fjórðungi hafi litast af erfiðu árferði á verðbréfamörkuðum en afar góðri afkomu af vátryggingastarfseminni.
Með betri fyrstu fjórðungum á vátryggingamarkaði
Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta hjá Sjóvá nam 1.126 milljónum króna og afkoma af vátryggingasamningum fyrir skatta var jákvæð um 821 milljón. Þá var samsett hlutfall 90,2% á fjórðungnum.
„Frábær afkoma af vátryggingasamningum, 821 m.kr. fyrir skatta sem er með betri fyrstu ársfjórðungum sem við höfum skilað,“ segir Hermann.
Tekjur Sjóvá af vátryggingasamningum á fyrsta fjórðungi jukust um 3,6% milli ára og námu tæplega 8,4 milljörðum króna. Félagið segir að tekjuvöxturinn hafi verið drifinn áfram á einstaklingsmarkaði.
„Tíðarfar var nokkuð hagfellt og tjónaþróun undir áætlunum á fyrsta ársfjórðungi og munar þar mest um jákvæða þróun í eignatryggingum á milli ára en ekkert stórtjón henti á fjórðungnum.“
Ávöxtun af eignum í stýringu „langt undir væntingum“
Tap af fjárfestingum fyrir fjármagnsliði og skatta var 704 milljónir króna og ávöxtun eigna í stýringu neikvæð um 1,0% „sem er langt undir væntingum“.
„Gríðarlegar sveiflur hafa verið á verðbréfamörkuðum um heim allan það sem af er ári og fóru innlendir verðbréfamarkaðir ekki varhluta af þeirri þróun. Allir eignaflokkar skiluðu jákvæðri ávöxtun á fjórðungnum fyrir utan skráð hlutabréf þar sem ávöxtun var neikvæð um 9,0%.“
Fram kemur að ávöxtun ríkisskuldabréfa hafi verið jákvæð um 1,9% og annarra skuldabréfa 2,0%.
Sjóvá mun ekki birta horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi en Hermann bendir á að áætlanir félagsins geri ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu nemi 8,5% á ári til lengri tíma miðað við núverandi vaxtastig og fjárfestingastefnu.
„Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingastarfsemi nema þær verði raktar til verulegra breytinga á óskráðum eignum eða á eignasafni.“