Innnes hagnaðist um 250 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 285 milljónir árið 2023.
Líkt og undanfarin ár var Innnes með mestar tekjur heildverslana hér á landi en tekjur félagsins námu 20,6 milljörðum króna, sem er ríflega 15% aukning milli ára.
Hlutfall hagnaðar Innness af tekjum nam því 1,2% á árinu. Stjórn félagsins leggur til 500 milljóna króna arðgreiðslu til hluthafa vegna síðasta rekstrarárs.
Í ársbyrjun 2024 sameinaðist Djúpalón ehf. inn í Innnes en félagið sérhæfir sig í sjávarfangi. Magnús Óli Ólafsson er forstjóri Innnes.
Innnes
2023 |
---|
17.835 |
6.703 |
2.784 |
285 |