Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri, er ekki meðal umsækjenda um embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar. Stofnunin, sem tekur til starfa í byrjun næsta árs, varð til í kjölfar breytinga á stofnunum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.
Embættið var auglýst laust til umsóknar í byrjun júlí sl. og sóttu sex umsækjendur um stöðuna, að því er kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Umsækjendurnir eru:
- Björn Arnar Hauksson, deildarstjóri hjá Orkustofnun
- Gestur Pétursson, M.Sc. iðnaðar- og rekstrarverkfræði
- Halla María Sveinbjörnsdóttir, lögfræðingur og mannauðsstjóri
- Markús Ingólfur Eiríksson, doktor í endurskoðun
- Rakel Rún Karlsdóttir, jarðfræðingur
- Soffía Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri
Hæfnisnefnd sem skipuð hefur verið af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mun meta hæfni og hæfi umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra.