Halla Gunnarsdóttir hefur ákveðið gefa kost á sér til formanns VR í kosningum stéttafélagsins sem fara fram í mars. Þetta kemur fram í yfirlýsingu hennar til fjölmiðla.

Halla, sem hafði verið varaformaður VR, tók við sem formaður félagsins í byrjun desember af Ragnari Þór Ingólfssyni eftir að hann hlaut kjör á þing.

Halla er fyrrverandi framkvæmdastjóri ASÍ en hún sagði starfi sínu lausu árið 2022 eftir að Drífa Snædal sagði af sér formennsku. Þar áður hafði Halla starfað sem ráðgjafi Katrínar Jakobsdóttur, þáverandi forsætisráðherra, í jafnréttismálum á árunum 2018-2020.

Í yfirlýsingunni segir Halla að VR standi frammi fyrir flóknum viðfangsefnum á næstu misserum. Áhætta hafi verið tekin með því að undirrita kjarasamninga til lengri tíma „í umhverfi verðbólgu og ofurvaxta“.

„Launafólk er orðið langeygt eftir raunverulegum vaxtalækkunum og langþreytt á dýrtíð. Það er tímabært að atvinnurekendur og stjórnvöld axli sína ábyrgð á stöðunni. Við höfum greitt fyrir þetta efnahagsástand alltof dýru verði á meðan bankastofnanir og fjármagnseigendur græða á tá og fingri,“ segir Halla.

„Á sama tíma er gerð atlaga að skipulagðri baráttu launafólks, til dæmis með stofnun gervistéttarfélaga og beitingu verkbannsvopnsins án ábyrgðar, sem og órökstuddum hugmyndum um að auka valdheimildir ríkissáttasemjara. Sporin hræða og í löndum þar sem verkalýðshreyfingin hefur verið brotin á bak aftur með þessum hætti býr vinnandi fólk við mun lakari kjör, afkomuóöryggi og jafnvel fátækt þrátt fyrir fulla vinnu.“

Yfirlýsing Höllu í heild sinni:

Kjörstjórn VR hefur nú auglýst eftir framboðum til formanns og stjórnar félagsins og munu kosningar fara fram í mars. Ég gef kost á mér til áframhaldandi setu sem formaður VR og vona að ég hljóti til þess brautargengi frá félagsfólki.

Ég var kjörin í stjórn VR fyrir tveimur árum, gegndi síðan embætti varaformanns og tók við formennsku VR í lok síðasta árs. Í starfi innan stjórnar VR hef ég beitt mér fyrir aukinni þekkingu og slagkrafti í umræðu um efnahagsmál, enda hafa þau gríðarleg áhrif á kjör launafólks. Ég hef sérstaklega gagnrýnt hávaxtastefnuna, sem hefur þegar kostað félagsfólk VR á bæði eigna- og leigumarkaði háar fjárhæðir, og hina viðvarandi tilhneigingu til að kjarabætur séu teknar til baka í gegnum verðhækkanir, gjöld og þjónustuskerðingu. Sem dæmi má nefna að ég hef undir höndum bréf frá banka þar sem lántakanda er tilkynnt um 172 þúsund króna hækkun á mánaðarlegri greiðslubyrði af heimili fyrir fjögurra manna fjölskyldu, á sama tíma og við þurfum öll að borga meira fyrir mat, rafmagn, tryggingar og opinbera þjónustu, svo fátt eitt sé nefnt.

Ég hef einnig tekið kjör barnafjölskyldna föstum tökum og hafði frumkvæði að málefna- og stefnumótunarvinnu um kjör og stöðu foreldra ungra barna innan VR, þar sem sýnt var fram á að tekjuskerðing foreldra ungra barna vegna fæðingarorlofs og umönnunarbils hleypur hæglega á milljónum króna. Við í VR höfum gagnrýnt harðlega hækkanir á leikskólagjöldum í nokkrum sveitarfélögum og ég lagði mín lóð á vogarskálarnar til að tryggja gjaldfrjálsar skólamáltíðir í tengslum við síðustu kjarasamninga. Loks vil ég að VR taki upp stuðning við nýbakaða foreldra, sem fjölmörg stéttarfélög bjóða nú þegar, til að létta á fjárhagsáhyggjum á viðkvæmum tíma í lífi bæði foreldra og barns.

VR stendur frammi fyrir flóknum viðfangsefnum á næstu misserum. Áhætta var tekin með því að undirrita kjarasamninga til lengri tíma í umhverfi verðbólgu og ofurvaxta. Launafólk er orðið langeygt eftir raunverulegum vaxtalækkunum og langþreytt á dýrtíð. Það er tímabært að atvinnurekendur og stjórnvöld axli sína ábyrgð á stöðunni. Við höfum greitt fyrir þetta efnahagsástand alltof dýru verði á meðan bankastofnanir og fjármagnseigendur græða á tá og fingri. Á sama tíma er gerð atlaga að skipulagðri baráttu launafólks, til dæmis með stofnun gervistéttarfélaga og beitingu verkbannsvopnsins án ábyrgðar, sem og órökstuddum hugmyndum um að auka valdheimildir ríkissáttasemjara. Sporin hræða og í löndum þar sem verkalýðshreyfingin hefur verið brotin á bak aftur með þessum hætti býr vinnandi fólk við mun lakari kjör, afkomuóöryggi og jafnvel fátækt þrátt fyrir fulla vinnu.

  • Við verðum að halda bæði stjórnvöldum og atvinnurekendum við efnið og tryggja að vextir lækki og verðhækkanir séu stöðvaðar. Ákvarðanir í efnahagsmálum sem varða okkur öll eiga ekki að vera teknar á grunni gróðahyggju eða úreltra hagfræðikenninga.
  • Við verðum að ráðast til atlögu við húsnæðiskrísuna og tryggja að allt vinnandi fólk geti átt öruggt heimili á viðráðanlegum kjörum.
  • Við verðum að standa vörð um og efla verkalýðshreyfinguna og VR gegnir þar lykilhlutverki sem stærsta stéttarfélag landsins.

VR félagar vinna bæði fjölbreytt og verðmæt störf og halda uppi litlum sem stórum fyrirtækjum á almennum markaði. Hluti VR-inga starfar eftir töxtum og grunntímakaup hefur ekki hækkað sem skyldi. Meirihluti félagsfólks VR semur sjálft um kjör sín en nýtur stuðnings af almennum kjarasamningum og þeim hækkunum og réttindum sem þar er samið um. Allir VR félagar eiga það sameiginlegt að njóta góðs af því að tilheyra stóru og öflugu félagi sem veitir fyrirtaks þjónustu og berst fyrir þeirra kjörum og hagsmunum. Þá baráttu vil ég gjarnan leiða.

Ég hef starfað innan verkalýðshreyfingarinnar í fimm ár og bý yfir fjölbreyttri reynslu af bæði vinnumarkaði og félagsstörfum. Ég hef starfað sem sérfræðingur, skrifstofukona, framkvæmdastjóri, aðstoðarmaður ráðherra, blaðamaður, verkefnastjóri, lagerstarfsmaður, fótboltaþjálfari, millistjórnandi og afgreiðslukona. Ég hef alla tíð verið virk í félagsstörfum og á mér óteljandi áhugamál. Ég bý í Reykjavík með fjölskyldunni minni en hjarta mitt býr líka að hluta til í London og að hluta á Austfjörðum.

Ég óska eftir stuðningi VR félaga til að halda áfram að leiða félagið, enda er ég rétt að byrja!

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR