Hluta­bréfa­verð Hampiðjunnar hefur hækkað um 6,5% í tæp­lega 300 milljón króna við­skiptum í morgun en félagið birti árs­hluta­upp­gjör eftir lokun markaða á mið­viku­daginn.

Þar sem kaup­höllin var lokuð í gær er um að ræða fyrsta við­skipta­dag eftir upp­gjör félagsins.

Gengi Hampiðjunnar stendur í 114 krónum þegar þetta er skrifað. Það sem af er ári er hæsta dagsloka­gengi félagsins 116,8 krónur á hlut.

Hluta­bréf Hampiðjunnar hafa nú hækkað um rúm 12% það sem af er ári.

Þrjú einstök viðskipti fyrir 500 þúsund hluti hafa farið í gegn í dag. Ein utanþingsviðskipti á genginu 110,5 krónur á hlut sem jafngildir um 55 milljón króna viðskiptum.

Tvö viðskipti með jafn marga hluti fóru síðan í gegn rétt fyrir klukkan tíu á genginu 113,5 og 113 krónur á hlut sem jafngildir 56,7 milljón króna viðskiptum og 56,5 milljón króna viðskiptum.

Hampiðjan hagnaðist um 2,8 milljónir evra, eða um 413 milljónir króna, á fyrsta árs­fjórðungi, sem sam­svarar 3,4% aukningu frá sama tíma­bili í fyrra.

Rekstrar­tekjur Hampiðjunnar á fyrsta fjórðungi hækkuðu um 17,4% milli ára og námu 91,9 milljónum evra eða um 13,4 milljörðum króna.

EBITDA-hagnaður sam­stæðunnar jókst um 34,5% og nam 11,2 milljónum evra eða um 1,6 milljörðum króna. Fjár­magns­kostnaður og mikill gengis­munur drógu niður hagnað félagsins á fjórðungnum.

Hjörtur Er­lends­son, for­stjóri Hampiðjunnar, bendir á að hluti af aukinni veltu sam­stæðunnar er til­kominn vegna inn­komu norska félagsins Fiizk sem varð hluti af sam­stæðunni frá 1. septem­ber 2024 og neta- og kaðla­fyrir­tækisins Kohin­oor sem kemur inn í sam­stæðu­upp­gjörið frá 1. febrúar í ár.

Ef einungis eru tekin þau félög sem fyrir voru í samstæðunni þá var söluaukning þeirra 7,3%.