Róbert R. Spanó, fyrrverandi forseti Mannréttindadómstóls Evrópu og prófessor við lagadeild Háskóla Íslands hefur farið yfir álitsgerð lögmannsstofunnar Logos fyrir lífeyrissjóðina varðandi ÍL-sjóð.
Róbert telur fyrirætlanir fjármálaráðaherra um að slíta sjóðnum andstæðar stjórnarskránni sem og mannréttindasáttmála Evrópu.
Viðskiptablaðið fjallaði um sjónarmið Róberts fyrr í kvöld.
Segir lögfræði Róberts Spánó hentilögfræði
Hannes Hólmsteinn Gissurarson gefur ekki mikið fyrir lagatúlkanir Róberts Spánó. Hann rifjar upp á samfélagsmiðlum í kvöld að Róbert hafi farið yfir tillögur þingmannanefndar um ákærur á hendum ráðherrum í kjölfar falls viðskiptabankanna þriggja árið 2008.
Hannes segir að ráð Róberts hafi gefist illa.
Hér á eftir er færsla Hannesar Hólmsteins á Facebook:
Róbert Spanó er misvitur lögfræðingur eins og Eyjólfur Bölverksson forðum. Hann fór árið 2010 yfir tillögur þingmannanefndar Atla Gíslasonar um ákærur á hendur fjórum ráðherrum með tilliti til skýrleika.
Landsdómur vísaði síðan tveimur þeirra frá vegna óskýrleika og sýknaði fyrir þrjár þeirra. Ráð Róberts gáfust illa.
Ég fer yfir þetta í bók minni um landsdómsmálið. Því miður er lögfræði Róberts að miklu leyti hentilögfræði. Og líklega hefði átt betur við að birta myndina alræmdu af honum með Erdogan Tyrklandsforseta.