Norðursnakk er nýtt íslenskt sprotafyrirtæki sem framleiðir harðfisk í snakkformi en snakkið hefur alveg eins áferð og hefðbundnar kartöfluflögur. Verkefnið er eitt 18 hugmynda sem keppa í Slipptökunni á Akureyri í þessum mánuði.

Stofnendur Norðursnakks eru Sölvi Steinn Helgason og Sigrún Finna Snædal en þau hafa verið vinir frá því þau kynntust fyrir tæpum áratug.

„Ég er að sunnan en Sigrún er að norðan. Við kynntumst svo þegar hún kom til Reykjavíkur og við fórum að vinna saman á Matbar. Við höfum líka alltaf deilt þessum sameiginlega áhuga á innlendri matargerð og íslenskum hráefnum,“ segir Sölvi.

Hann segist hafa verið með hugmynd um að opna veitingastað en hugmyndin um Norðursnakk hafi svo komið í gegnum pabba Sigrúnar, sem á Verbúð á Akureyri, sem lagði grunninn að þeirri aðferð sem Norðursnakk síðan kláraði.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.