Fjárfestingarisinn Vanguard, næststærsta sjóðastýringafélag heims, hefur tilkynnt um lækkun þóknana á helmingi allra skuldabréfasjóða sinna í Evrópu.
Þetta er liður í árásargjarnri sókn félagsins inn á Evrópumarkað og svar við harðnandi samkeppni á meðal stærstu sjóðastýringarfyrirtækja álfunnar.
Heildareignir Vanguard nema yfir 10,5 þúsund milljörðum bandaríkjadala á heimsvísu. Nú hyggst félagið lækka rekstrarkostnað (e. ongoing charges) á sjö af 15 evrópskum kauphallarsjóðum sínum sem fylgja skuldabréfamörkuðum, þar á meðal breskum ríkisskuldabréfum og skuldabréfum nýmarkaðsríkja.
Þóknanir lækka um 2 punkta en samkvæmt áætlunum Vanguard mun það skila viðskiptavinum sparnaði upp á 3,5 milljónir dollara á ári.
Að breytingunum loknum verður meðalþóknun skuldabréfa- og virkra skuldabréfasjóða Vanguard í Evrópu aðeins 0,11% miðað við eignavægi.
Lækkunin er hluti af víðtækari hreyfingu meðal stærstu sjóðstýringafélaga heims – Vanguard, BlackRock og State Street – sem öll berjast um markaðshlutdeild á vaxandi skuldabréfamarkaði.
Salim Ramji, forstjóri Vanguard, sagði í samtali við Financial Times í fyrra að skuldabréfamarkaðurinn byði upp á „ótrúlega hagkvæmni og tækifæri“ og að stækkun reksturs félagsins á þessu sviði væri forgangsverkefni.
„Skuldabréfamarkaðurinn er nú orðinn tvöfalt stærri en hlutabréfamarkaðurinn, en hann er enn dýr og ógagnsær,“ segir Jon Cleborne, framkvæmdastjóri Vanguard í Evrópu. Hann bætti við að Vanguard hygðist auka framboð sitt á vörum með föstum tekjum á komandi mánuðum.