Heildsöluverð á raforku lækkaði verulega í mánaðarlegu söluferli raforkumarkaðsins Vonarskarðs á svokölluðum mánaðarblokkum í morgun.
Kaup- og sölutilboð bárust í um 635 GWst af raforku fyrir tæplega 6 milljarða króna. Alls áttu sér stað viðskipti með 109 GWst af raforku fyrir um 961 milljón króna.
Lækkunin nemur að meðaltali 11,6% milli mánaða en 13,3% samanborið við hápunkt verðþróunarinnar í nóvember.
Að auki urðu í fyrsta sinn síðan í haust viðskipti með blokkir frá júní til og með september á þessu ári, á 13,9% lægri verðum en lægstu sölutilboð síðasta söluferlis laust fyrir jól.
Mánaðarblokkir fela í sér fast magn raforku á hverri klukkustund heils almanaksmánaðar, og frá því í fyrrasumar hefur bróðurpartur heildsöluviðskipta með raforku verið á því formi, þar sem ekki hafa átt sér stað teljandi viðskipti með lengri samninga.
Söluferli - eining; krónur á MWst
Janúar | |||||||||
8,779 | 9,300 | ||||||||
8,742 | 9,395 | ||||||||
8,697 | 9,453 | ||||||||
6,707 | 8,610 | ||||||||
6,612 | 7,254 | ||||||||
6,520 | 7,267 | ||||||||
6,719 | 7,288 | ||||||||
7,074 | 8,417 | ||||||||
8,005 | 8,609 | ||||||||
8,060 | 8,613 | ||||||||
8,729 | 9,354 | ||||||||
8,505 |
Eftir þunga byrjun á vatnsárinu 1. október hefur lónsstaða Þórisvatns braggast verulega eins og sjá má á meðfylgjandi grafi, með vænum stökkum upp á við fyrst um miðjan nóvember og aftur nú upp úr miðjum janúar, auk þess að hafa komið nokkuð vel út úr desember í sögulegu samhengi.
Þórisvatn er stærsta stöðuvatn landsins og mikilvægasta miðlunarlón Landsvirkjunar.
Í metrum yfir sjávarmáli hefur samanburðurinn við árið á undan þannig farið úr því að vera þremur metrum lægri í upphafi nóvember, í tæpum einum og hálfum metra hærri samkvæmt síðustu mælingu síðdegis í dag.