Í tilefni 30 ára afmælis Latabæjar hófst í dag heilsuátak undir nafninu Íþróttanammi en átakið miðar að því að auka neyslu barna á ávöxtum og grænmeti. Átakið er unnið í samstarfi við Embætti landlæknis og Heilbrigðisráðuneytið.

Fyrr á árinu vakti Embætti landlæknis athygli á mikilvægi þess að auka neyslu barna á grænmeti og ávöxtum. Heilbrigðisráðherra lagði einnig áherslu á að auka aðgengi að hollum mat.

Um 35 börn og 10 kennarar úr leikskólanum Urðarhóli tóku þátt í fyrsta Latabæjarleiknum sem fram fór í dag við verslun Bónus í Kauptúni.

Leikurinn gengur út á að borða hollt og fá orkustig fyrir afrekið. Börnin byrja á því að koma í verslanir Bónus, Hagkaupa eða Olís, sem eru styrktaraðilar að átakinu, og versla ávexti og grænmeti.

„Frá upphafi hefur markmið okkar verið að hvetja börn til að tileinka sér hollan lífsstíl.“

Börnin fá síðan stig fyrir það hversu mikið af hollum vörum þau kaupa. Orkustigin eru síðan skráð og stimpluð og geta þau síðan fengið plakat, límmiða og verðlaun.

„Frá upphafi hefur markmið okkar verið að hvetja börn til að tileinka sér hollan lífsstíl og gera heilbrigðan kost að aðlaðandi vali. Starfsemi okkar hófst á Íslandi en hefur síðan náð til barna og fjölskyldna víðs vegar um heiminn. Það verður að segjast eins og er að heilsuástand barna á Íslandi er áhyggjuefni,“ segir Magnús Scehving, eigandi Latabæjar.

Hluti af ágóða verkefnisins rennur í Styrktarsjóð Latabæjar sem hefur það að markmiði að efla hreyfingu og heilbrigði barna.