Fasteignafélagið Heimar hafa undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Tryggvagötu ehf., að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Seljendur eru lánasjóðurinn MF2 hs., í stýringu hjá Ísafold Capital Partners, og Laxamýri ehf., sem er í eigu Hjalta Gylfasonar, Jónas Más Gunnarssonar og Georgs Gíslasonar.

Heildarvirði Tryggvagötu ehf. samkvæmt kaupsamningi nemur 6.375 milljónir króna. Kaupverð greiðist að fullu með reiðufé og yfirtöku skulda.

Tryggvagata ehf. á fasteignirnar Tryggvagötu 14, og Tryggvagötu 10 í miðborg Reykjavíkur. Heildarfermetrafjöldi fasteignanna er um 5.500.

Um er að ræða kaup á 106 herbergja, 4 stjörnu hóteli í miðborg Reykjavíkur og aðliggjandi skrifstofubyggingu.

Eignirnar eru í útleigu og leigutakar í eignunum eru Exeterhouse ehf., rekstraraðili Exeter hótels, og Aton Jl.

„Fasteignirnar eru heilar nýlegar eignir byggðar árið 2018 og eru staðsettar innan skilgreindra kjarnasvæða Heima. Kaupin samræmast því stefnuáherslum félagsins,“ segir í tilkynningu Heima.

„Exeter hótel hefur á síðustu misserum fest sig í sessi sem eitt af bestu hótelum borgarinnar og er það staðsett á eftirsóttum stað með einstakt útsýni yfir höfnina. Hótelið býr yfir framúrskarandi staðsetningu, nútímalegri hönnun og gæðaþjónustu sem tryggir hátt nýtingarhlutfall og verðmætasköpun til framtíðar.“

Stjórnendur Heima áætla að áhrif kaupanna á EBITDA félagsins á ársgrundvelli verði 454 milljónir króna í kjölfar viðskipta.

Kaupsamningurinn er háður ýmsum fyrirvörum, m.a. um niðurstöðu áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

LEX var ráðgjafi Heima í viðskiptunum og Arion banki og BBA // Fjeldco voru ráðgjafar seljenda.