Nasdaq tilkynnti í dag að tvö félög koma ný inn í OMX Iceland 15 (OMXI 115) vísitöluna, sem er einnig þekkt sem Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland. Breytingin tekur gildi á mánudaginn 2. janúar 2025.

Félögin sem koma ný inn í vísitöluna eru fasteignafélögin Heimar (sem hét áður Reginn) og Kaldalón. Hlutabréfaverð beggja félaga hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu og hækkað um meira en helming í ár.

Í stað þeirra fara Eimskip og Hampiðjan úr vísitölunni. Hlutabréfaverð beggja félaga hefur lækkað í ár.

Úrvalsvísitalan er samsett af þeim félögum sem mest viðskipti eru með á hlutabréfamarkaði Nasdaq Iceland. Endurskoðun á sér stað tvisvar á ári og tekur ný samsetning vísitölunnar gildi í janúar og júlí ár hvert.

Þann 2. janúar næstkomandi verður vísitalan samsett af eftirfarandi félögum:

  • Alvotech
  • Amaroq Minerals Ltd.
  • Arion Banki hf.
  • Eimskipafélag Islands hf.
  • Festi hf.
  • Hagar hf.
  • Hampiðjan hf.
  • Icelandair Group hf.
  • Íslandsbanki hf.
  • Kvika banki hf.
  • Marel hf.
  • Oculis Holding AG
  • Reitir fasteignafélag hf.
  • Síldarvinnslan hf.
  • Sjóva-Almennar tryggingar hf.