Heimar fasteignafélag hafa samþykkt kauptilboð Módelhúsa ehf., fasteignafélags í eigu Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur, í fimm fasteignir. Söluverð eignanna er samtals 3.275 milljónir króna og er áætlaður söluhagnaður Heima 351 milljón króna.

Heimar hyggjast nýta söluandvirðið til fjárfestinga í samræmi við fjárfestingastefnu félagsins, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Fasteignirnar sem um ræðir eru að Eyrartröð 2a, Norðurhellu 10 og Reykjavíkurvegi 74, Hafnarfirði, auk fasteigna að Vatnagörðum 6 og Vatnagörðum 8, Reykjavík. Heildarfermetrafjöldi fasteignanna er 8.962 m2.

Núverandi leigutekjur eignanna nema um 250 milljónum króna á ársgrundvelli.

„Fasteignirnar eru staðsettar utan skilgreindra kjarnasvæða Heima og samræmist sala þeirra stefnuáherslum félagsins.“

Kauptilboðið er háð hefðbundnum fyrirvörum, m.a. um ástandsskoðun og fjármögnun. Áætlað er að kaupsamningar um fasteignirnar verði undirritaðir eigi síðar en í nóvember 2024.