Síðasta heimili Björgólfs Guðmundssonar, sem lést í febrúar, hefur verið selt fyrir 360 milljónir króna.
Íbúðin er á næst efstu hæð í Bryggjugötu 4 við Austurhöfn. Hún var í eigu Novator F11 ehf. sem er í eigu sonarins Björgólfs Thors Björgólfssonar.


Íbúðin er 199 fm og afar glæsilega innréttuð og hafði smekkmaðurinn Björgólfur heitinn mikið um hönnunina að segja. Fasteignamat íbúðarinnar fyrir árið 2026 er 318.200.000 kr.
Kaupandi íbúðarinnar er Magnús Sverrir Þorsteinsson, aðaleigandi og forstjóri bílaleigunnar Blue Car Rental í Keflavík.

Björgólfur, og eiginkona hans heitin Þóra Hallgrímsson, bjó áður í Vesturbrún 22. Þau keyptu húsið árið 1994.
Björgólfur seldi húsið í ársbyrjun 2024 til Sendiráðs Japans fyrir 540 milljónir króna. Húsið er nú sendiherrabústaður japanska sendiherrans.