Í mánaðarskýrslu HMS sem kom út fyrr í mánuðinum kemur fram að hrein ný íbúðalán til heimila námu alls 9,2 milljörðum króna í apríl. Heimilin tóku ný verðtryggð lán hjá bönkum að fjárhæð 8 milljarða króna í apríl en uppgreiðslur heimila á óverðtryggðum lánum til banka námu 7,6 milljörðum króna. Heimili tóku alls ný verðtryggð lán hjá lífeyrissjóðum fyrir 9,4 milljarða króna en þar að auki námu hrein ný óverðtryggð lán hjá lífeyrissjóðum alls 200 milljónum króna í aprílmánuði. Uppgreiðslur umfram ný lán hjá HMS námu 800 milljónum í mánuðinum.

Hrein ný lántaka hafi því verið töluverð hjá lífeyrissjóðunum sem einkennt hafi allt þetta ár, vegna ásóknar í verðtryggð lán. Hún hafi aftur á móti verið mjög lítil hjá bönkunum þriðja mánuðinn í röð, þar sem álíka mikið var greitt upp af óverðtryggðum lánum og tekið var að láni í nýjum hreinum verðtryggðum lánum.

HMS bendir á að þessi ásókn heimila í lífeyrissjóðslán sé athyglisverð fyrir þær sakir að veðsetningarhlutföll hjá lífeyrissjóðum séu almennt lægri svo að lífeyrissjóðslán séu í mörgum tilfellum ekki fullnægjandi fjármögnunarkostur fyrir fólk með lítið eigið fé. Þar með þurfi fasteignakaupendur að reiða fram meira eigið fé til að fjármagna íbúðakaup en í því samhengi séu vísbendingar um að sparnaður hafi vaxið umfram vöxt launa.

Laun hafi hækkað undanfarin misseri en greina megi að innlán heimila hafi vaxið hraðar en ráðstöfunartekjurnar. Innlán heimila hafi aukist um 17% milli ára að meðaltali frá því í byrjun árs 2024 en tólf mánaða breyting launavísitölu sé um 8%. Sparnaðurinn sé þó að öllum líkindum meðal tekjuhærri hópa.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.