Netverslunin Heimkaup stefnir að því að hætta að selja mat- og sérvöru og snúa sér alfarið að netsölu áfengis. Gréta María Grétarsdóttir, forstjóri Heimkaupa, staðfestir þetta í samtali við RÚV.
„Framvegis verður áherslan sett á afhendingu á áfengi, öðrum drykkjarvörum og tengdum vörum. Við stefnum auðvitað að því að bæta enn frekar úrvalið og auka fjölbreytni hjá okkur í þessum flokkum,“ segir Gréta í svari við fyrirspurn RÚV.
Heimkaup, sem hófu áfengissölu sumarið 2022, voru meðal fyrstu rekstraraðila netverslana með áfengi hér á landi.
Viðskiptablaðið greindi frá því í desember síðastliðnum að Heimkaup væri að segja upp tólf manns. Gréta María upplýsti við það tilefni að stjórnendur félagsins hefðu tekið rekstur samnefndrar vefverslunar félagsins til skoðunar og félagið hefði tekið ákvörðun um að leggja enn meiri áherslu á Prís.
Heimkaup og Samkaup, sem rekur m.a. verslanir Nettó, tilkynntu í desember um að félögin hefðu náð samkomulagi um helstu forsendur sameiningar félaganna.
Í maí var tilkynnt um að áform um að sameinað félag Heimkaupa og Samkaupa verði hluti af samstæðu Orkunnar. Alls hafa hluthafar að 98,5% hlut í Samkaupum undirritað kaupsamning um kaup Orkunnar á Samkaupum.