Stjórnir Samkaup og Heimkaup hafa undirritað samrunasamning sem byggir á samkomulagi sem félögin undirrituðu þann 18. desember 2024 um helstu skilmála vegna samruna félaganna.
Áreiðanleikakönnun er þá lokið og er undirritun samnings bindandi. Samruni félaganna er enn háður fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og endanlegt samþykki hluthafafunda beggja aðila en formleg samrunatilkynning hefur verið send til Samkeppniseftirlitsins.
„Við erum ákaflega ánægð með þennan áfanga í þróun okkar eigna á sviði smásölu. Sameinað félag verður öflugt og mun búa yfir þeim skala sem nauðsynlegur er til að nýta þau tækifæri sem nú eru á dagvörumarkaði. Greiningar ráðgjafa félaganna hafa sýnt fram á veruleg samlegðaráhrif, þá sér í lagi í innkaupum, og munu þau hafa jákvæð áhrif á afkomu félaganna þegar fram í sækir,“ segir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL.
Samkaup er yfirtökufélagið og sameinast þar með öllum einingum Heimkaupa á dagvörumarkaði og greiðir fyrir þau með útgefnu hlutafé í Samkaupum. Hluthafar Heimkaupa eignast þar með rúmlega 10% hlutafjár í sameinuðu félagi.
„Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu eftir vinnu síðustu missera. Ég er sannfærður um að sameinað félag eigi eftir að gera góða hluti til hagsbóta fyrir neytendur. Samruninn er í samræmi við framtíðarstefnu Samkaupa og felur í sér margvísleg tækifæri til vaxtar,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa.
Fyrir viðskiptin er Skel eigandi að 6% eignarhlut í Samkaupum í gegnum eignarhaldsfélag. Eignarhlutur SKEL í sameinuðu félagi verður rétt undir 14%. Hluthafasamkomulag meðal stærstu hluthafa í Samkaupa gerir ráð fyrir skráningu félagsins á hlutabréfamarkað.