Rachel Reeves fjármálaráðherra Bretlands mun ekki aflýsa þriggja daga heimsókn sinni til Kína að sögn Lisu Nandy, menningarmálaráðherra Bretlands.

Tilgangur heimsóknarinnar er að efla viðskipta- og efnahagsleg tengsl landanna en breska pundið hefur ekki verið lægra í rúmt ár og hefur þá lánakostnaður ekki verið hærri í 16 ár.

„Við erum fullviss um að við séum að grípa bæði til skammtímaaðgerða til koma að á stöðugleika í hagkerfinu ásamt langtímaaðgerðum sem eru nauðsynlegar fyrir framtíðarhagvöxt,“ segir Nandy í samtali við BBC.

Hún bætir við að ráðherrann þurfti að taka sambandi Bretlands og Kína alvarlega og að staða hagkerfisins sé hluti af alþjóðlegri þróun sem sést um allan heim.

Fjárfestar hafa jafnframt haft áhyggjur undanfarna mánuði um fyrirhugaða tolla Donalds Trumps, verðandi Bandaríkjaforseta, á innfluttar vörur frá Kanada, Mexíkó og Kína og telja að þær gætu leitt að aukinni verðbólgu.