Bjórframleiðandinn Heineken mun fjárfesta 2,75 milljörðum dala í mismunandi verkefnum í Mexíkó. Fréttamiðillinn Reuters hefur þetta eftir forstjóra fyrirtækisins í landinu sem greindi frá áformunum.

Oriol Bonaclocha, forstjóri Heinken í Mexíkó, sagði á blaðamannafundi Claudiu Sheinbaum, forseta Mexíkó, að fjárfestingin feli í sér uppbyggingu nýrrar verksmiðju í suðausturhluta landsins.

Nýja verksmiðjan, sem verður staðsett í Yucatan-fylki, verður upphaflega með framleiðslugetu upp á fjórar milljónir hektólítra. Forstjórinn segist hins vegar búast við því að sú geta muni tvöfaldast í framtíðinni samkvæmt þörfum fyrirtækisins.

„Við ætlum ekki að loka neinum verksmiðjum, þvert á móti er þetta stækkun,“ var haft eftir Bonaclocha á blaðamannafundinum.