Norska félagið Helitrans AS hefur keypt allt hlutafé í Þyrluþjónustunni ehf., sem á Helo og Reykjavík Helicopters. Seljandi er Narro ehf. Kaupverð er trúnaðarmál, að því er segir í fréttatilkynningu.
Helitrans AS var stofnað árið 1990 og er eitt stærsta þyrlufyrirtækið á Norðurlöndum. Þeir eiga og reka 26 þyrlur á 15 stöðum í Noregi. Þeir eiga jafnframt flug- og þyrluskóla í Svíþjóð. Aðalskrifstofur félagsins eru á Værnes flugvelli í Þrándheimi.
Fjölvar Darri Rafnsson og Þorlákur Runólfsson eiga sitt hvorn 41,7% hlut í Narro ehf. Þá á Rafn Valur Alfreðsson 16,6% hlut.
Velta Þyrluþjónustunnar nam 174 milljónum króna árið 2021 samkvæmt síðasta ársreikningi félagisns. Félagið hagnaðist um 17 milljónir árið 2021 eftir 21 milljóna tap árið 2020.
Eignir Þyrluþjónustunnar voru bókfærðar á 287 milljónir í árslok 2021, þar af voru loftför metin á 225 milljónir. Eigið fé í lok árs 2021 var 67,5 milljónir.
„Helitrans hefur góða þekkingu á íslenska markaðnum eftir gott samtarf undanfarin ár við Þyrluþjónustuna. Ég sé líka mikil vaxtatækifæri á íslenska þyrlumarkaðnum þar sem Ísland er vinsæll áfangastaður fyrir ferðmenn. Margir hafa sett Ísland á ”bucket list” sinn enda býður Ísland upp á stórfenglega náttúru. Ég er jafnframt spenntur fyrir því að geta boðið íslenskum fyrirtækjum upp á verkflug enda eru okkar flugmenn með mikla reynslu af því að fljúga með þungan farm og í lagningu á rafstrengjum í Noregi,“ er haft eftir Ole Christian Melhus, forstjóra Helitrans AS.
„Kaup Helitrans á fyrirtækinu okkar er stórt skref inn í framtíðina fyrir starfsfólk okkar og viðskiptavini. Helo og Reykjavík Helicopters eru þekkt vörurmerki á Íslandi og ætlar Helitrans að halda áfram að hlúa að þeim og efla starfsemina þeirra enn frekar. Síðustu árin hafa verið spennandi en jafnframt krefjandi í rekstri og er ég þakklátur okkar frábæra starfsfólki og viðskiptavinum,“ segir Fjölvar Darri Rafnsson, stjórnarformaður Þyrluþjónustunnar.