Ísbúð Vesturbæjar hagnaðist um 12 milljónir króna í fyrra, samanborið við 23 milljóna hagnað árið áður. Tekjur jukust um 4,5% milli ára og námu 583 milljónum króna. Rekstrarkostnaður nam 558 milljónum króna og afskriftir námu 11 milljónum. Eigið fé nam 66 milljónum í lok síðasta árs, skuldir voru 19 milljónir og eignir 85 milljónir.
Í skýrslu stjórnar segir að hráefnisverð hafi hækkað vegna óvissu á mörkuðum erlendis auk þess sem óvissa sé um þróun heimsmarkaðsverðs vegna vaxandi átaka í heiminum. Þá þurfi félagið stöðugt að vera á varðbergi gagnvart launaþróun.
Ísbúð Vesturbæjar er í fullri eigu Kjarnavara hf. en greint var frá því fyrr í ár að Ölgerðin hafi undirritað samkomulag um kaup á 100% hlut í Kjarnavörum og var virði félagsins í viðskiptunum tæplega 4 milljarðar króna. Kjarnavörur högnuðust um 303 milljónir í fyrra og veltu 2,3 milljörðum. Í lok árs 2024 fór danska félagið Dragsbæk Margarinefabrik A/S með 67,6% hlut á móti 32,4% hlut Guðjóns Rúnarssonar.
Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.