Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, keypti í gær 315 þúsund hluti í fjölmiðla- og
fjarskiptafyrirtækinu gegnum félagið Krummi Kapital sem hún á í jafnri eigu með
eiginmanni sínum Sævari Péturssyni.
Samkvæmt kauphallartilkynningu var gengið í viðskiptunum var 38 krónur á hlut og kaupverðið því um 12 milljónir króna.
Hlutabréfaverð Sýnar hefur lækkað um 20% á árinu en félagið sendi frá sér neikvæða afkomuviðvörun í lok apríl.
Fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækið birti skömmu síðar árshlutauppgjör en Sýn tapaði 153 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 213 milljóna hagnað á sama tímabili í fyrra.
Hákon Stefánsson, stjórnarformaður Sýnar, keypti í síðustu hlutabréf í fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækinu fyrir 11,3 milljónir króna í gegnum félagið sitt Íslex ehf., samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Hann keypti 300 þúsund hluti í Sýn á genginu 37,8 krónur á hlut.
Um fjórðu kaup Hákonar í Sýn var að ræða frá því í mars 2023 en hann stækkaði
síðast hlut sinn í félaginu fyrir tæplega 100 milljónir króna í nóvember síðastliðnum.