Her­­dís Dröfn Fjeld­­sted, for­­stjóri Sýnar, keypti í gær 315 þúsund hluti í fjöl­­miðla- og
fjar­­skipta­­fyrir­­­tækinu gegnum fé­lagið Krummi Kapi­­tal sem hún á í jafnri eigu með
eigin­manni sínum Sæ­vari Péturs­­syni.

Sam­kvæmt kaup­hallar­til­kynningu var gengið í við­skiptunum var 38 krónur á hlut og kaup­verðið því um 12 milljónir króna.

Hluta­bréfa­verð Sýnar hefur lækkað um 20% á árinu en fé­lagið sendi frá sér nei­kvæða af­komu­við­vörun í lok apríl.

Fjöl­­miðla- og fjar­­skipta­­fyrir­­­tækið birti skömmu síðar árs­hluta­­upp­­­gjör en Sýn tapaði 153 milljónum króna á fyrsta árs­fjórðungi saman­borið við 213 milljóna hagnað á sama tíma­bili í fyrra.

Hákon Stefáns­­son, stjórnar­­for­­maður Sýnar, keypti í síðustu hluta­bréf í fjar­­skipta- og fjöl­­miðla­­fyrir­­­tækinu fyrir 11,3 milljónir króna í gegnum fé­lagið sitt Íslex ehf., sam­­kvæmt til­­­kynningu til Kaup­hallarinnar. Hann keypti 300 þúsund hluti í Sýn á genginu 37,8 krónur á hlut.

Um fjórðu kaup Hákonar í Sýn var að ræða frá því í mars 2023 en hann stækkaði
síðast hlut sinn í fé­laginu fyrir tæp­lega 100 milljónir króna í nóvember síðast­liðnum.