Nýsköpunarfyrirtækið HILI hefur formlega kynnt nýtt nafn, Aparta og nýjan vettvang í aðdraganda mikillar stækkunar í Evrópu, að því er segir í fréttatilkynningu. Fyrirtækið er þegar starfandi í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Íslandi.
„Nýtt nafn og ný ímynd endurspeglar metnað fyrirtækisins um stækkun inná alþjóðlegan stafrænan vettvang og er Aparta tilbúið að taka skrefið inn á fjölda nýrra evrópskra markaða árin 2025 og 2026.“
„Við höfum kynnt nýja ímynd og nýtt vörumerki sem endurspeglar betur hver við erum og framtíðina sem við erum að byggja. Aparta endurspeglar kjarnahugmynd okkar um að fjárfesta í hlut af heimilinu þínu sem langtíma faglegan meðeiganda. Nafnið leggur einnig áherslu á að íbúðir eru miðpunktur sameignarhugmyndar okkar og það hentar vel á mörgum tungumálum og menningarheimum,“ segir Sigurður Viðarsson, framkvæmdastjóri Aparta á Íslandi (áður HILI).
Aparta býður upp á nýja lausn til að fjárfesta í og eiga sameiginlega íbúðir í Evrópu. Með sveigjanlegu sameignarlíkani gerir fyrirtækið fasteignaseigendum kleift að losa fjármagn úr sínum eignum án þess að þurfa að flytja eða taka á sig meiri skuldir. Eigandinn heldur fullum umráðum og notkun á eigninni, á meðan Aparta verður langtíma meðeigandi í gegnum sameiginlega eignauppbyggingu.
Aparta er innviðafyrirtæki fyrir fjárfestingar í íbúðarhúsnæði einstaklinga og hefur byggt upp kerfi, tengsl og lagaramma til að styðja við nýstárleg eignarform í stórum stíl.
„Við erum að byggja upp nýja innviði fyrir fjárfestingar í heimilum í Evrópu. Nýja vörumerkið styður metnað okkar: að gera sameign að almennum, áreiðanlegum og aðgengilegum kosti fyrir bæði fasteignaeigendur og fjárfesta,“ segir Sigurður.
Aparta þjónar bæði stofnanafjárfestum og einstaklingum með sveigjanlegum vettvangi hannað fyrir allar gerðir af íbúðarhúsnæði. Fyrir fasteignaeigendur býður Aparta upp á sveigjanlega leið til að losa fé úr sínum eignum. Fyrir fjárfesta býður vettvangurinn aðgang að fasteignamarkaði einstaklinga.
„Líkanið okkar sameinar þekkingu okkar á fasteignum og er hannaður til að vaxa með eftirspurn á hverjum markaði, segir Sigurður.
Alþjóðavefurinn aparta.com er nú þegar er farinn í loftið og þar geta bæði fasteignaeigendur og fjárfestar skoðað tækifærin sem Aparta býður.
Aparta gerði nýlega samstarfssamning við Stefni, sjóðastýringarfyrirtæki í eigu Arion, til að hefja fyrsta búsetusameignarsjóð Íslands sem byggir á sameignarvettvangi Aparta.
Félagið segir svipuð samkomulög vera í undirbúningi við aðrar leiðandi fjármálastofnanir á Norðurlöndunum og í Evrópu.