L2A ehf., félag utan um rekstur skemmtistaðarins Auto, hagnaðist um 11 milljónir króna og velti 247 milljónum króna á árinu 2023, en um var að ræða annað heila starfsár staðarsins.
Til samanburðar hagnaðist Auto um 26,5 milljónir króna á sínu fyrsta heila rekstrarári árið 2022, og velti þá 232 milljónum.
Minni hagnaður milli ára skýrist af hækkunum aðfanga og launa, að því er kemur fram í skýrslu stjórnar.
Skemmtistaðurinn, sem er í kjallara Hard Rock við Lækjargötu, var einungis í rekstri í fimm vikur á árinu 2021 vegna samkomutakmarkana og velti þá 40 milljónum.
Þeir Sindri Snær Jensson og Jón Davíð Davíðsson, stofnendur Auto, eiga hvor sinn 45% hlutinn í félaginu og Ólafur Alexander Ólafsson, rekstrarstjóri Auto, á 10% hlut.
L2A ehf.
2022 |
---|
232 |
53 |
27 |
27 |