Rúnar Smári Jensson, fráfarandi félagsráðgjafi hjá Janus endurhæfingu, segir það mikinn missi fyrir samfélagið að missa endurhæfingarstöðina en tilkynnt var í gær að Janus muni leggja niður starfsemi frá og með 1. júní næstkomandi.

Öllu starfsfólki hefur sömuleiðis verið sagt upp en á heimasíðu Janusar segir að hátt í þriðja tug sérfræðinga starfi hjá endurhæfingarstöðinni.

Stöðin hefur sérhæft sig í að veita ungu fólki, 18 ára og eldra, úrræði en hún segir að ekki hafi náðst að tryggja nauðsynlegt fjármagn til að halda rekstri áfram og sökum þess var ofangreind ákvörðun tekin.

„Við erum náttúrulega að vinna með fólki sem þarf mikla aðstoð og mikla aðhlynningu. Janus býður upp á úrræði sem byggist á 25 ára starfsemi og hér er mikil þekking. Það er til dæmis geðlæknir hér sem vinnur innanhúss fyrir bæði starfsfólk sem þarf ráðleggingar og líka fyrir skjólstæðinga.“

Í tilkynningu frá Janus segir að yfir 56% þeirra sem hafa útskrifast frá endurhæfingarstöðinni síðastliðin þrjú ár hafi náð árangri með því að fara í vinnu, nám eða í virka atvinnuleit. Rúnar telur hins vegar að sú tala gæti jafnvel verið hærri.

„Við erum að hitta fólk daglega og huga að því hvar styrkleikar þess liggja og hvaða verkfæri fólk hefur til að takast á við eigin erfiðleika og bæta lífsgæði. Við erum til dæmis að kenna ungu fólki að fara í klippingu og hjálpa fjölskyldum þeirra sem upplifa mikla streitu við að styðja börn sín.“

Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins fyrr í vikunni kom fram að þríhliða samningur milli VIRK, Sjúkratrygginga Íslands og Janusar renni út í byrjun júní en ráðuneytið segir að lögð verði áhersla á að tryggja þeim einstaklingum sem hafa verið hjá Janusi endurhæfingarþjónustu.

„Ég veit ekki hvernig það verður en það sem ég veit er að Janus endurhæfing er eina endurhæfingarstöðin sinnar tegundar með læknisfræðilega heildræna nálgun. Hjólið er þegar til staðar og það þarf ekki að finna það upp. Við erum með gott fólk hérna sem er að vinna gott starf á hverjum degi,“ segir Rúnar.