Evrópskir hlutabréfamarkaðir tóku við sér í morgun eftir fréttir af vopnahléi milli Ísraels og Írans.

Fjárfestar brugðust jákvætt við vonum um að ástandið í Mið-Austurlöndum myndi róast, sem myndi draga úr hættu á röskun í orkuviðskiptum og ýta undir stöðugleika á hrávörumarkaði.

Helstu vísitölur hækkuðu allar. DAX í Þýskalandi hækkaði um 1,8 %, CAC 40 í Frakklandi um 1,3 % og FTSE 100 í Bretlandi um 0,5 %. STOXX Europe 600 hækkaði einnig um 1,3 %.

Olíuverð hefur haldið áfram að lækka í morgun. Brent Norðursjávarolía hefur lækkað um rúm 3% í morgun og stendur í 66,5 dölum og er verðið lægra en fyrir árás Íraelshers á Íran sem hófst 13. júní.

Þrátt fyrir bjartsýna opnun eru blikur á lofti. Ísrael sakaði Íran um eldflaugaárás skömmu eftir að vopnahléið átti að taka gildi en Íran neitar því.

Eyal Zamir yfirmaður ísraelska hersins sagði í yfirlýsingu fyrir stundu að árásarinnar yrði hefnt. Fjármálaherrann Bezalel Smotrich sagði að „Tehran muni skjálfa,“ og Donald Trump sagði í morgun að vopnahlé gilti enn.