Hluta­bréf í fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyrir­tækinu Sýn hafa hækkað um rúm 3% í morgun í yfir 230 milljón króna veltu.

Í byrjun síðasta mánaðar tilkynnti Sýn að fjöl­miðla­rekstri fé­lagsins yrði skipt upp í tvær að­skildar rekstrar­einingar.

Við­skipta­blaðið greindi frá því í gær að við­loðandi orð­rómur hefur verið í nokkurn tíma að horft sé til þess að selja hluta af fjöl­miðla­rekstrinum. Upp­stokkunin kann að vera undan­fari slíkrar sölu.

Sýn stofnaði rekstrar­eininguna „Vef­miðlar og út­varp“ utan um allar fjöl­miðla­einingar sínar að Stöð 2 undan­skilinni. Auk þess verða Já.is og Bland.is, sem Sýn festi ný­lega kaup á, innan nýju rekstrar­einingarinnar.

Heimildir Við­skipta­blaðsins herma að Ari Edwald, fyrrum for­stjóri 365 miðla, fari fyrir hópi fjár­festa sem hafa á­huga á að kaupa ráðandi hlut í miðlum sem falla undir nýju rekstrar­eininguna Vef­miðlar og út­varp, þ. e. Vísi og út­varps­miðlana Bylgjuna, FM957 og X-ið.

Hluta­bréf Sýnar hafa lækkað um 26% á árinu en gengið stóð í 59 krónum í byrjun janúar en stendur í 44 krónum þegar þetta er skrifað.