Hlutabréfaverð lágfargjaldaflugfélagsins Wizz Air hefur lækkað um meira en 26% í morgun eftir að félagið birti ársuppgjör fyrir síðasta fjárhagsár sem lauk 31. mars sl.
Hagnaður Wizz dróst saman um 41,5% milli ára og nam tæplega 214 milljónum evra. Félagið segir að kyrrsetning á fleiri en 40 flugvélum, sem varða vandamál tengdum Pratt & Whitney hreyflum, hafi haft talsverð áhrif á reksturinn.
Í umfjöllun Financial Times segir að Wizz Air sé það evrópska flugfélag sem hafi orðið fyrir mestum áhrifum af innköllunum Pratt & Whitney árið 2023.
Alls voru 37 flugvélar Wizz áfram kyrrsettar þann 9. maí síðastliðinn. Flugfélagið gerir ráð fyrir að við lok fyrri árshelmings yfirstandandi fjárhagsárs verði 34 flugvélar kyrrsettar.
Jozsef Varadi, forstjóri Wizz, hefur áður sagt að hann geri ráð fyrir að flugfélagið verði áfram fyrir áhrifum af kyrrsetningunni næstu tvö til þrjú árin að því er kemur fram í umfjöllun Reuters.