Hluta­bréfa­verð Al­vot­ech hækkaði um rúm 3% í 199 milljón króna við­skiptum í dag.

Dag­loka­gengi félagsins nam 1.135 krónum á hlut sem er hækkun úr 1.070 krónum síðustu tvo við­skipta­daga.

Gengi félagsins hefur sveiflast tölu­vert á síðustu mánuðum en hluta­bréfa­verð Al­vot­ech hækkaði um 45% í maímánuði en hefur síðan lækkað um 17% síðastliðinn mánuð.

Gengi félagsins hefur lækkað um 36% það sem af er ári.

Hluta­bréfa­verð fast­eignafélagsins Eikar hækkaði um rúm 2% í þremur við­skiptum sem námu 41 milljón króna í heildina. Gengi Eikar var 13,6 krónur við lokun markaða.

Gengi Kaldalóns hækkaði um rúm 2% í 39 milljón króna við­skiptum og lokaði gengið í 22,7 krónum á hlut.

Gengi Play og Icelandair leiddi lækkanir er hækkandi olíu­verð á heims­vísu eykur óvissu í kringum flug­félögin.

Huta­bréfa­verð Icelandair lækkaði um tæp 2% á meðan gengi Play fór niður um 1,65%. Dagsloka­gengi Icelandair var 1,01 króna á meðan gengi Play var 0,9 krónur á hlut.

Úvals­vísi­talan OMXI15 hækkaði um 0,57%. Heildar­velta á markaði nam 2,3 milljörðum.