Hluta­bréfa­verð málm­leitarfélagsins hefur lækkað um rúm 13% í vikunni en félagið birti árs­hluta­upp­gjör fyrir opnun markaða í gær.

Hluta­bréf í félaginu lækkuðu ör­lítið í að­draganda upp­gjörs en gengið fór síðan niður um 4% í við­skiptum gær­dagsins.

Dagsloka­gengið var 138 krónur á hlut en þegar þetta er skrifað stendur gengið í 130 krónum eftir um 6% lækkun í við­skiptum dagsins.

Sam­kvæmt árs­hluta­upp­gjöri málm­leitarfélagsins Amaroq Minerals vinnur félagið hörðum höndum að frekari upp­byggingu í Nalunaq-gullnámunni í Suður-Græn­landi. Stöðugur fram­gangur er á verk­efninu þrátt fyrir ár­stíða­bundnar áskoranir.

„Eins og fram kom í kynningu okkar á árs­upp­gjöri 2024 leiddu veður­tengdar aðstæður á fyrsta árs­fjórðungi til þess að það hægðist á fram­kvæmdum við vinnslu­stöð okkar í Nalunaq. Ég er aftur á móti afar ánægður með þróunina undan­farið og höfum við sýnt góðan fram­gang í vinnslu­stöðinni en ekki síður í námu­vinnslunni,“ sagði Eldur Ólafs­son, for­stjóri Amaroq Minerals, í upp­gjörinu.

Rekstrar­tap tíma­bilsins nam 4,4 milljónum kana­da­dollara, sem er veru­leg lækkun frá sama tíma­bili í fyrra (9,2 milljónir). Sam­hliða náði félagið í tekjur að fjár­hæð 643 þúsund dali vegna stjórnunar­verk­efna tengdum Gardaq-sam­starfs­verk­efninu.

Lausa­fjár­staða félagsins var sterk í lok fjórðungsins, með 23,4 milljónir dala í lausafé, þar af 16,7 milljónir í reiðufé og að­gang að ónotaðri 23,7 milljóna dala lána­línu, að frá­dregnum 17 milljónum í við­skipta­skuldir.

Áfram­haldandi fram­kvæmdir við vinnslu­stöð og gang­setningu fyrsta fasa eru á áætlun.

Fyrir­tækið miðar að því að ná fram­leiðslu­getu upp á 300 tonn á dag á fjórða árs­fjórðungi. Vegna eðlis gang­setningar og til­rauna­vinnslu er ár­leg fram­leiðslu­spá sett í bilinu 5 til 20 þúsund únsur gulls.