Hlutabréfaverð Íslandsbanka hefur lækkað um rúm 2% í 29 milljón króna viðskiptum það sem af er degi.
Gengi bankans stóð í 116 krónum um hálf tólf í dag. Dagslokagengi bankans var 118,5 krónur á hlut fyrir helgi eftir umtalsverða hækkun í vikunni á meðan ríkið seldi eignarhlut sinn í bankanum.
Útboði ríkisins lauk á fimmtudaginn en útboðsgengið í tilboðsbók A, sem var einungis aðgengileg einstaklingum með íslenska kennitölu, var 106,56 krónur á hlut.
Tilboð einstaklinga í tilboðsbók A námu samtals 88,2 milljörðum króna, sem jafngildir 97,4% af heildarvirði útboðsins, sem metið er á 90,6 milljarða króna.
Gert er ráð fyrir að hlutum verði úthlutað til 31.274 einstaklinga, þó með fyrirvara um leiðréttingar við endanlega úthlutun.
Fjárfestar sem gerðu tilboð í tilboðsbækur B og C stóðu fyrir ríflega hundrað milljörðum króna eða eftirstandandi hluta af heildareftirspurn útboðsins sem nam um 190 milljörðum króna.
Bankabréf lækka
Hlutabréfaverð Arion banka hefur einnig lækkað í viðskiptum dagsins er gengi bankans hefur farið niður um rúmt 1%.
Gengið stendur í 171,5 krónum á hlut þegar þetta er skrifað eftir um 110 milljón króna viðskipti.
Gengi Kviku banka hefur lækkað um 0,66% í rúmlega 200 milljón króna viðskiptum.
Gengi Kviku stendur í 15,1 krónu á hlut sem er tæplega 12% hærra en fyrir mánuði síðan.