Pítsakeðjan Pizzan ehf., sem rekur átta veitingastaði, tapaði tæplega 130 milljónum króna árið 2023 samanborið við 214 milljóna króna tap árið 2022. Félagið skilaði síðast hagnaði árið 2016 en frá 2017 til 2023 tapaði Pizzan samanlagt um 840 milljónum króna.
Pizzan velti 1.307 milljónum árið 2023 sem er 1,2% aukning frá fyrra ári. Rekstrartap fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 89 milljónum árið 2023 samanborið við 198 milljónir árið áður. Stöðugildi að meðaltali voru 64,7 árið 2023, samanborið við 76,2 árið áður.
Í skýrslu stjórnar félagsins sem var undirrituð í gær, 27. janúar, segir að rekstur félagsins hafi gengið erfiðlega. Stjórnin segir hins vegar að viðsnúningur hafi átt sér stað á síðasta ári.
Hlutafé aukið um nærri milljarð á þremur árum
Hlutafé Pizzunnar var aukið um 421 milljón króna á árinu 2023, samkvæmt nýbirtum ársreikningi. Alls var hlutafé félagsins aukið um ríflega 960 á árunum 2021-2023. Engu að síður var eigið fé félagsins neikvætt um 68 milljónir í árslok 2023.
„Félagið hefur staðið í endurskipulagningu á rekstri sínum á árinu 2023 sem fólst meðal annars í því að skipt var um stjórnendur og hluthafi jók hlutafé,“ segir í ársreikningi félagsins.
„Á árinu 2024 hefur gengið vel að greiða niður skuldir félags og fer staða félagsins batnandi. Í ljósi þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til og að vilyrði er frá eiganda um frekari fjármögnun telja stjórnendur að félagið muni standa við skuldbindingar sínar.“
Þar segir að félagið hafi verið rekstrarhæft næstu 12 mánuði eftir lok reikningsskila, en birting uppgjörs átti sér stað á árinu 2025. Gangi fyrirætlanir félagsins um endurskipulagningu ekki eftir geti hins vegar ríkt vafi um rekstrarhæfi félagsins.
Ólafur Friðrik Ólafsson er eigandi Pizzunnar í gegnum félagi OFO ehf.
Lykiltölur / Pizzan ehf.
2022 |
1.292 |
1.490 |
-197,5 |
-214,2 |
154,1 |
-359,7 |
76,2 |