Hlutafé Íslenskra aðalverktaka hf. (ÍAV) var hækkað um tæplega 2,2 milljarða króna undir lok síðasta árs. Hækkunin fór fram með umbreytingu láns frá Marti Iceland (Pty) ehf., eiganda allra hluta í ÍAV, í hlutafé og á genginu 1,0 á hlut.
Samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskrár var um að ræða erlenda kröfu á hendur ÍAV sem Marti Iceland tók yfir í september á síðasta ári.
Sjá einnig: Eigendur ÍAV forðast sviðsljósið
Hagnaður ÍAV hefur verið fremur lítill sé miðað við umsvif félagsins undanfarin tvö ár, eða 40 milljónir árið 2019 og 6 milljónir árið 2018 . Velta ÍAV jókst úr ríflega 14 milljörðum króna í 17,7 milljarða milli áranna 2018 og 2019.
Í árslok 2019 nam eigið fé félagsins ríflega milljarði, skuldir um 3,6 milljörðum og eignir félagsins um 4,7 milljörðum króna.
ÍAV hefur verið í eigu svissneska verktakafyrirtækisins Marti Holding AG frá árinu 2010, sem Marti-fjölskyldan á og stýrir líkt og Frjáls verslun fjallaði um nýlega.