Viðbrögð á hlutabréfamörkuðum við árás Bandaríkjanna á kjanorkuinnviði í Íran um helgina hafa verið hófleg hingað til. Asíski hlutabréfamarkaðurinn lækkaði lítillega í morgun og evrópska hlutabréfavísitalan Stoxx Europe 600 hefur fallið um 0,2% frá opnun markaða.

Hlutabréfavísitala MSCI yfir Kyrrahafssvæði Asíu, án Japans, lækkaði um 0,9% og japanska Nikkei vísitalan féll um 0,1%. Þess má þó geta að nýjar hagtölur sem birtar voru í morgun gáfu til kynna vöxt í framleiðslugreinum í Japan eftir 11 mánaða samdráttartímabil.

Tunna af Brent hráolíu fór yfir 79 dali í gær en stendur í 77,2 dölum á hlut þegar fréttin er skrifuð.

Greinandi á fjárfestingarsviði hjá Saxo bank segir í samtali við Reuters að markaðir séu ef til vill ekki að bregðast beint við stigmögnun átaka heldur fremur horfi sumir á það sem svo að atburðir síðustu daga gætu dregið úr óvissu til lengri tíma.

Markaðshorfur gætu þó fljótlega breyst ef skýr merki væru um að írönsk stjórnvöld hyggist loka Hormússundi, mikilvægri siglingaleið þar sem um 20% af allri olíu fer um.