Nýtt frumvarp um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga er hluti af heildarendurskoðun á regluverki sem byggir á vinnu starfshóps sem þáverandi innviðaráðherra skipaði í byrjun árs 2023 en starfshópurinn byggði á vinnu verkefnisstjórnar sem þáverandi ráðherra skipaði um mitt ár 2021.
Frumvarp um Jöfnunarsjóð hafði áður verið lagt fram í lok árs 2023 en náði ekki fram að ganga. Regluverk sjóðsins hefur lítið breyst frá árinu 1990 þegar síðasta heildarendurskoðun fór fram.
Þó hafa nokkrar stórar breytingar orðið á þeim tíma, einna helst árið 1996 þegar grunnskólakostnaður færðist til sveitarfélaganna og árið 2011 þegar málefni fatlaðs fólks voru færð frá ríkinu til sveitarfélaganna.
Í umsögn Reykjavíkurborgar er farið fram á að borgin eigi að hafa sama möguleika og önnur sveitarfélög að fá framlög vegna grunnskóla. Samkvæmt frumvarpinu, sem og gildandi lögum, er kveðið á um að sveitarfélög með fleiri en 70 þúsund íbúa fái ekki framlög vegna reksturs grunnskóla.
Í nóvember sl. var ríkið sýknað í Hæstarétti í máli sem Reykjavíkurborg höfðaði vegna framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til reksturs grunnskóla og vegna nemenda með íslensku sem annað tungumál á tímabilinu 2015-2019.
Sneri Hæstiréttur þar með við niðurstöðu Héraðsdóms, sem hafði úrskurðað Reykjavíkurborg í vil og gert ríkinu að greiða borginni rúmlega þrjá milljarða króna vegna ógreiddra framlaga.
Í frumvarpinu sem nú er til umræðu er þó kveðið á um að Reykjavíkurborg fái framlög vegna nemenda með íslensku sem annað mál, þótt hún fái ekki framlög vegna reksturs grunnskóla.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.