Höldur ehf, bílaleiga Akureyrar, hagnaðist um 992 milljónir króna í fyrra. Til samanburðar tapaði félagið 300 milljónum árið 2020.

Bókfært eigið fé í árslok nam 2 milljörðum, en það tvöfaldaðist frá árinu áður þegar það nam milljarði. Félagið er með starfsemi á Akureyri, í Reykjavík, á Keflavíkurflugvelli og á mörgum starfstöðvum um allt land.

Í ársreikningi segir að hagræðingaraðgerðir félagsins á árinu 2020 hafi skilað sér vel árið 2021, en Steingrímur Birgisson er forstjóri Höldurs.

Fréttin birtist í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.