Nýverið innleiddi hollenska sjúkrahúsið Zuyderland lausn íslenska nýsköpunarfyrirtækisins MedEye. Lausnin skannar töflur myndrænt og greinir lyfjategundir til að koma í veg fyrir mistök en mistök við lyfjagjöf eru sögð vera alvarlegt vandamál.

Heilbrigðisstofnun Zuyderland og sjúkrahús í Hollandi með starfstöðvar í Limburg-héraðinu, sem innleiddi lausnina, er stærsti vinnuveitandinn á svæðinu og er heildarfjöldi starfsmanna um 4500 talsins.

„Þetta er stærsta innleiðing á MedEye hingað til, ekki bara í fjölda notenda heldur líka með tilliti til notkunar á öllum möguleikum MedEye. Svona innleiðing er gríðarlega stórt verkefni og tekur marga mánuði en þegar allt verður komið í gang þá mun MedEye sjá um að hjálpa hjúkrunarfræðingum við að sannreyna allar tegundir lyfja eins og t.d. töflur, hylki og sprautulyf,“ segir Gauti Reynisson, forstjóri og einn af stofnendum MedEye.

MedEye var stofnað árið 2010 og kom Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins fyrst að fjármögnun þess árið 2011. Nýverið bættist hollenski fjárfestingasjóðurinn ECFG við sem fjárfestir í MedEye.

„Við viljum fjárfesta í fyrirtækjum sem bjóða upp á vélbúnaðarlausn til viðbótar við hugbúnað. Þannig höfum við þróað sérfræðiþekkingu okkar og er MedEye því áhugaverð viðbót við eignasafn okkar, þar sem það býður upp á einstaka lausn á mjög brýnu og alþjóðlegu vandamáli,“ segir Leo van Schijndel, fjárfestingarstjóri hjá ECFG.