Procter & Gamble segir að fyrirtækið muni segja upp rúmlega sjö þúsund starfsmönnum, eða 15% af vinnuafli fyrirtækisins sem ekki starfar í framleiðslu um allan heim, á næstu tveimur árum.
Þetta kemur fram á vef WSJ en þar segir að P&G, sem framleiðir meðal annars þvottaefnið Tide, Pampers-bleyjur og Bounty-eldhúsrúllur, hafi verið með 108 þúsund starfsmenn á sínum snærum í júní í fyrra.
Stjórnendur P&G tilkynntu þetta á ráðstefnu sem haldin var í París og minntust einnig á áform um að draga úr vöruúrvali fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur hins vegar ekki gefið nánari upplýsingar um hvaða vörur yrðu fyrir valinu.
P&G segir að fækkun starfsmanna tengist endurskipulagningu fyrirtækisins en mörg framleiðslufyrirtæki hafa verið að endurskoða útgjöld sín frá því að viðskiptastríð Donalds Trumps hófst, bæði með tilliti til tolla og efnahagsástands.