Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að leggja 200% viðbótartoll á evrópskt áfengi ef Evrópusambandið fjarlægir ekki 50% tollinn sem tilkynntur var nýlega.

Í færslu frá forsetanum á samfélagsmiðlinum Truth Social ítrekar hann afstöðu sína um að ESB hafi verið stofnað til að notfæra sér Bandaríkin og koma höggi á þjóðina. Trump lýsti tollum ESB á viskí sem ljótum.

„Ef þessi tolllagning verður ekki látin fara þá munu Bandaríkin setja 200% toll á allt vín, kampavín og aðra áfenga drykki sem koma frá Frakklandi og öðrum ESB-ríkjum. Það væri frábært fyrir vín- og kampavínsfyrirtæki í Bandaríkjunum.“