Hótel Selfoss hefur skrifað undir samning við Marriott International um að hótelið verði Four Points by Sheraton hótel sem er eitt af yfir 30 vörumerkjum Marriott Bonvoy. Samkomulagið fylgir í kjölfar umfangsmikilla endurbóta á hótelinu.
Hótel Selfoss verður þriðja Marriott hótelið á Íslandi. Edition-hótelið við hliðina á Hörpu tilheyrir einnig Marriott keðjunni sem og Courtyard by Marriott Reykjavik Keflavik Airport hótelið, sem er skammt frá Keflavíkurflugvelli.
Hótel Selfess segir í tilkynningu að með því að tengjast Marriott muni Hótel Selfoss styrkja stöðu sína á hótelmarkaði og bjóða gestum upp á nýja og spennandi möguleika. Hótel Selfoss er staðsett við bakka Ölfusár í hjarta Suðurlands.
Hótel Selfos er í eigu eignarhaldfélagsins JAE sem keypti hótelið og rekstrarfélag þess á 2,7 milljarða króna í árslok 2022. JAE keypti einnig Hótel Vestmannaeyjar árið 2022 og festi kaup á fleiri fasteignum í Vestmannaeyjum af Kaldalóni haustið 2023, líkt og Innherji greindi frá á sínum tíma.
„Við erum mjög ánægð með þessa breytingu og teljum að samstarfið við Marriott muni hjálpa okkur að veita gestum hótelsins enn betri upplifun. Jafnframt mun tengingin við Bonvoy skapa ný markaðstækifæri fyrir Hótel Selfoss,“ segir Björgvin Jóhannesson, hótelstjóri Hótel Selfoss.
„Við erum mjög spennt að fá Hótel Selfoss inn í Marriott Bonvoy sem Four Points by Sheraton hótel. Staðsetning hótelsins er frábær, þjónustan framúrskarandi, herbergin rúmgóð og öll aðstaða til fyrirmyndar,“ er haft eftir Axel Steinbach, þróunarstjóra Marriott International fyrir Norðurlöndin.