Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað um meira en 10% eftir árásir Ísraelshers á Íran í nótt. Á vef BBC segir að heimsmarkaðsverð hafi ekki verið hærra síðan í janúar og einnig séu áhyggjur um að stigmagnandi átök gætu raskað olíuframboði.
Þegar markaðir opnuðu í Evrópu hafði olíuverð lækkað örlítið og var aðeins 5% hærra en það var við lokun markaða í gær.
Tunnuverð á hráolíu samkvæmt markaðnum í London var þá 72,8 dalir og samkvæmt Nymex-vísitölunni í Bandaríkjunum stóð verðið í 73,2 dölum. Þrátt fyrir hækkunina er olíuverð hins vegar 10% lægra en það var á sama tíma í fyrra.
Sérfræðingar hjá Capital Economics segja að ef Ísraelsher hefði ákveðið að sprengja hafnir og olíuframleiðslustöðvar Írans hefði hráolíuverð hækkað upp í 80 til 100 dali á tunnu.
Þeir bættu þó við að slík verðhækkun myndi hvetja aðra olíuframleiðendur til að auka framleiðslu sem myndi á endanum takmarka verðhækkunina og þau áhrif sem hún myndi hafa á verðbólgu.