Hreggviður Jónsson fjárfestir var með rúman milljarð í fjármagnstekjur í fyrra og er í ellefta sæti á lista yfir þá 150 einstaklinga sem voru með hæstu fjármagnstekjurnar árið 2022. Þar að auki var hann með tæplega 2,7 milljónir króna í mánaðarlaun, samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar.

Hann á 87,5% hlut í fjárfestingafélaginu Stormtré en stærsta eign félagsins er 90% eignarhlutur í Guðrúnarborg, móðurfélagi Veritas Capital samstæðunnar. Hreggviður var stjórnarformaður Veritas þar til í upphafi síðasta árs þegar hann steig til hliðar. Síðar sama ár ákvað Hreggviður að setja Veritas í söluferli en ferlið sett á ís á þessu ári.

Samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar í vor er Hreggviður einn af 50 ríkustu Íslendingunum en auður hans er metinn á 20 milljarða króna. Auk Veritas eru helstu eignir 6,6% hlutur í Controlant og 1,95% hlutur í Festi auk þess sem félag Hreggviðs á stóran hlut í fasteignauppbyggingu við Austurhöfn í Reykjavík, sem greiddi út 2,5 ma.kr. til hluthafa í fyrra.

Listi yfir þá 150 einstaklinga sem voru með hæstu fjármagnstekjurnar í fyrra birtist í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta nálgast listann hér.