Í kjölfar dóms Hæstaréttar Íslands þar sem innmötunargjald Landsnets var dæmt ólöglegt, hefur HS Orka ákveðið að endurgreiða viðskiptavinum sínum það gjald sem þeir greiddu sérstaklega undir þessum lið, að því er segir í fréttatilkynningu.
Fyrir notendur á almenna markaðnum nema endurgreiðslur HS Orku á annað hundrað milljónum króna.
Landsneti bar samkvæmt dómi Hæstaréttar frá 5. júní sl., þar sem niðurstaða fyrri dómsstiga var staðfest, að endurgreiða sex raforkuframleiðendum samtals um þrjá milljarða króna vegna svokallaðs innmötunargjalds. Þar af runnu 2,4 milljarðar til Landsvirkjunar.
Gjaldið var hluti af flutningsgjöldum Landsnets og var lagt á í byrjun árs 2022. Það var innheimt í 18 mánuði, fram til september 2023.
Sannfærð frá upphafi að gjaldið stæðist ekki lög
HS Orka segist vera eina orkufyrirtækið á íslenskum raforkumarkaði sem hafi valið að aðgreina innmötunargjaldið sérstaklega á reikningum sínum til viðskiptavina.
„Sú ákvörðun byggðist á sannfæringu fyrirtækisins um að gjaldið stæðist ekki lög og ætti ekki að vera hluti af almennri gjaldskrá. Með þessari aðgreiningu var tryggt að viðskiptavinir HS Orku hefðu skýra yfirsýn yfir gjaldtöku og rétt til endurgreiðslu ef gjaldið yrði síðar dæmt ólöglegt – sem nú hefur gerst.“
Endurgreiðslan mun ná til tímabilsins frá apríl 2022 til október 2023 og kemur hún sem inneign á reikningum viðskiptavina. Endurgreiðslan mun verða sýnileg á reikningum viðskiptavina fyrir júní mánuð.
„Við höfum frá upphafi haft efasemdir um lögmæti þessa gjalds og því tekið þá afstöðu að sýna það sérstaklega á reikningum okkar. Nú þegar Hæstiréttur hefur staðfest ólögmæti þess, er eðlilegt og rétt að viðskiptavinir okkar fái það endurgreitt,“ segir Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri sölu og þjónusta hjá HS Orku.