HSBC, stærsti banki Evrópu, hefur ákveðið að loka lykil­hlutum fjár­festingar­banka­starf­semi sinnar í Bret­landi, Evrópu og Ameríku.

Að­gerðin er hluti af endur­skipu­lagningu sem Geor­ges Elhedery for­stjóri bankans stendur fyrir sam­kvæmt Financial Times.

Sam­kvæmt minnis­blaði sem bankinn sendi frá sér í dag mun HSBC hætta við­skiptaráðgjöf sinni á sviði sam­runa og yfir­taka (M&A) og starf­semi á hluta­bréfa­mörkuðum utan Asíu og Miðaustur­landa.

„Þessar einingar hafa í raun ekki nægi­lega um­fangs­mikla starf­semi,“ sagði heimildar­maður sem þekkir til málsins við FT. „Það var ein­fald­lega mjög erfitt að byggja upp stöðu þar sem HSBC hefur nægi­legt sam­keppnis­for­skot.“

Þrátt fyrir þessar breytingar mun bankinn áfram viðhalda starf­semi sinni í skulda­bréfaút­gáfum, fjár­mögnun skuld­settra yfir­taka, raun­veru­legri eigna­fjár­mögnun og inn­viða­fjár­mögnun á þessum mörkuðum, að sögn heimildar­mannsins.

Að­gerðin, sem fyrst var greint frá hjá Bloom­berg, kemur á sama tíma og Elhedery vinnur að víðtækri endur­skipu­lagningu þar sem bankanum er skipt upp í „austur“ og „vestur“ einingar.

Fjár­festinga­banka­starf­semi HSBC nam einungis um 6 pró­sentum af heildar­tekjum bankans á fyrri hluta síðasta árs sam­kvæmt árs­hluta­upp­gjöri.

Tekjur starf­seminnar lækkuðu um 3 pró­sent á milli ára á sama tíma­bili.