Breska fyrirtækið Boss Pets, sem framleiðir gæludýravörur í Liverpool, hefur fengið skipun um að loka vefsíðu sinni eftir kvörtun frá tískufyrirtækinu Hugo Boss sem segir að fyrirtækið væri að brjóta gegn vörumerkjarétti þess.

Á vef Guardian segir að Ben McDonald hafi stofnað netverslunina í febrúar en orðið boss er algengt slanguryrði fyrir frábært eða framúrskarandi á Merseyside-svæðinu.

McDonald segist bara vera einfaldur strákur frá Bootle sem hafi eytt hverri einustu krónu í að koma fyrirtæki sínu á laggirnar. Hann segir að heimur hans hafi hrunið þegar hann fékk bréf frá Hugo Boss þar sem honum var gefinn 10 daga frestur til að loka vefsíðu sinni og krafist var þess að hann hætti að nota nafnið.

Francis McEntegart, lögmaður McDonald, segir að skjólstæðingur sinn sé að reka lítið staðbundið fyrirtæki sem sé rétt byrjað að selja gæludýravörur og mun ekki hafa haft nein áhrif á hagnað Hugo Boss á nokkurn hátt.

Talsmaður Hugo Boss segist vera meðvitaður um notkun orðsins í daglegu tali en segir að fyrirtækið þyrfti að vernda vörumerkjarétt sinn.