Huppuís skilaði 15,9 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samanborið við 3,7 milljóna hagnað árið 2020. Velta félagsins jókst um 28% á milli ára og nam 587 milljónum króna en félagið opnaði tvær ísbúðir í fyrra. Þá opnaði áttundu ísbúð Huppu á Seltjarnarnesi í byrjun þessa árs.
Ísbúð Huppu var stofnuð á Selfoss árið 2013 af vinkonunum Telmu Finnsdóttur og Eygló Rún Karlsdóttur og mökum þeirra, þeim Gunnari Má Þráinssyni og Sverri Rúnarssyni. Síðan þá hafa umsvif ísbúðarinnar aukist til muna og er Huppuís orðin stærsta ísbúðakeðja landsins.
Sjá einnig: Helmingur í Huppu á 160 milljónir
Þau seldu helmingshlut í félaginu til Eignarhaldsfélagsins Kolku, aðaleiganda Emmessís, í fyrra fyrir 160 milljónir króna en Huppa og Emmessís hafa frá upphafi átt í samstarfi við framleiðslu á ísnum sem Huppa selur.
Eignir Huppuíss voru bókfærðar á 94 milljónir króna í lok síðasta árs og eigið fé var um 47 milljónir.