Nú á næstu vikum stendur til að opna þriðju Húrra verslunina í Kringlunni en fyrir er verslunin staðsett á Hverfisgötu 18A í miðbæ Reykjavíkur, auk þess sem ný verslun var opnuð í brottfararsal Keflavíkurflugvallar fyrr á árinu.
Húrra verður staðsett á 2. Hæð Kringlunnar þar sem Nespresso var síðast staðsett.
„Við lítum svo á að vörur okkar og þjónusta eigi erindi við ennþá stærri hóp viðskiptavina og því opnum við nú í Kringlunni. Markmið okkar er að opna eina glæsilegustu verslun Kringlunar hönnuð af HAF Studio á besta stað í húsinu. Kringlan er auðvitað hin upprunalega verslunarmiðstöð, drottningin ef svo má segja og á ég sjálfur frábærar minningar úr Kringlunni eftir að hafa starfað þar á árum áður. Bruninn sem átti sér stað í sumar var auðvitað hræðilegur en ég er sannfærður um að Kringlan komi sterkari til baka en nokkru sinni fyrr,“ segir Sindri Jensson annar eigenda og stofnenda Húrra en hann stofnaði Húrra ásamt Jóni Davíð Davíðssyni árið 2014.
„Vöruframboðið okkar hefur verið að aukast mjög mikið og það eru ákveðnar vörur og vörumerki sem aðrar verslanir á Íslandi bjóða ekki upp á sem við munum koma með í Kringluna. Þar er hægt að nefna sérstakar týpur af skóm frá Adidas, Nike, New Balance, Salomon, Mizuno & Birkenstock svo dæmi séu tekin. Stone Island, Norse Projects, Blanche, Brutta Golf, Sporty & Rich og Won Hundred eru svo dæmi um vörumerki sem fást hvergi annars staðar á landinu en við munum bjóða í Kringlunni og öðrum verslunum okkar. Undanfarin misseri höfum við verið að bæta við okkur nýjum vörumerkjum og má þar helst nefna Human Made frá Japan, Marni frá Ítalíu, Dime frá Kanada, NonFiction frá S-Kóreu, No Problemo frá Bretlandi. Þetta tel ég veita Húrra ákveðna sérstöðu og ýtir enn frekar undir þá ákvörðun að fjölga verslunum og auka framboðið af Húrra heiminum,“ bætir hann við.