Forsvarsmenn Haga, móðurfélags Bónus, Hagkaups og Olís, hvetja stjórnvöld til að stuðla að stöðugleika og jafnvel lækkandi verðlagi á dagvöru „með ábyrgum opinberum rekstri og ákvörðunum í skattlagningu og tollamálum“.

Þetta kemur fram í ávarpi Finns Oddssonar, forstjóra Haga, og Eiríks S. Jóhannssonar, stjórnarformanns smásölufyrirtækisins í nýrri ársskýrslu Haga.

Þeir segja Hagar á undanförnum misserum hafa sérstaklega beitt sér gegn hækkunum á aðföngum til dagvöruverslunar og gætt bæði aðhalds í rekstri og hófs í álagningu. Þannig hafi félagið lagt sitt af mörkun til að styðja við lækkun verðbólgu.

„Í þessari vinnu höfum við yfirleitt getað treyst á gott samstarf við innlenda birgja, heildsala og framleiðendur, um að gæta hófs í verðhækkunum. Ef horft er til þróunar verðbólgu að undanförnu er ljóst að betur má ef duga skal.“

Í þessu samhengi má benda á að verð á mat og drykkjarvöru hefur hækkað um 5,7% síðastliðna tólf mánuði samkvæmt tölum Hagstofunnar, en til samanburðar hækkaði vísitala neysluverðs um 4,2% yfir sama tímabil. Í nýlegri greiningu ASÍ kemur fram að verðlag á matvöru hafi hækkað um meira en hálft prósent þrjá mánuði í röð.

„Hagar munu þar ekki draga af sér, en full ástæða er til þess að hvetja stjórnvöld til dáða með stuðningi við stöðugleika og jafnvel lækkandi verðlags á dagvöru með ábyrgum opinberum rekstri og ákvörðunum í skattlagningu og tollamálum,“ segir í ársskýrslunni.